Að skila skattframtali

Skattframtal geymir upplýsingar um tekjur og eignir einstaklinga og hversu mikið var borgað af þeim í skatt. Skattframtal er sent inn einu sinni á ári. Þannig fá einstaklingar útreikning á því hvort þeir hafi borgað of mikið, of lítið, eða rétta upphæð til hins opinbera.

Það sem greitt er í skatta er notað af ríkinu til að byggja og starfrækja það sem allir á Íslandi nota. Dæmi eru vegir, sjúkrahús og stofnanir.

Skattframtal fyrir árið 2025

Þú þarft að skila framtali ef þú:

  • Fékkst íslenskar tekjur/tekjur á Íslandi.

  • Ert 16 ára eða eldri.

Í skattframtalið eru settar tekjur og eignir fyrir árið á undan.

Dæmi: Skattframtal sem þú skilar árið 2024 er fyrir tekjur á tímabilinu janúar- desember 2023.

Opnað verður fyrir rafræn skil á skattframtölum 27.febrúar 2026.

Ferlið við að skila skattframtali

1. Opna skattframtalið

Tilkynning frá Skattinum

Skatturinn opnar fyrir framtöl. Þegar þau eru opin færðu tilkynningu í tölvupósti (?). Tilkynningin er send út í febrúar eða mars. Þá færð þú líka að vita skilafrestinn á framtalinu.

Rafræn skilríki

Til að komast inn í framtalið þarft þú að hafa rafræn skilríki.

Ef þú ert ekki með rafræn skilríki getur þú sótt um veflykil. Veflykillinn veitir þér aðgang að þjónustusíðu Skattsins. Þú getur fengið veflykilinn sendan í heimabanka eða með pósti á lögheimili þitt.

Ef þú ert yngri en 18 ára

2. Fara yfir og breyta

Þegar þú getur opnað framtalið þitt getur þú sett inn upplýsingar eða breytt því sem er búið að setja inn sjálfkrafa.

Geyma og vista

Þú getur geymt það sem þú hefur sett inn í framtalið með því að vista upplýsingarnar. Það er hægt að vinna í framtalinu smám saman og koma að því aftur.

Launafólk

Fyrir launafólk eru flestar upplýsingar forskráðar á skattframtalið. Þú þarft samt að fara yfir framtalið og passa að allt sé rétt. Oft þarf að bæta inn upplýsingum um styrki eða einstaka verktakagreiðslur.

Verktakar

Fyrir verktaka er ekki búið að skrá upplýsingar um tekjur fyrirfram. Það er því meiri vinna við skattframtal hjá þeim einstaklingum.

3. Prófa og senda

Villuprófun

Þú getur athugað hvort allt sé rétt fyllt út áður en þú sendir framtalið. Þá smellirðu á hnapp sem heitir villuprófun. Ef það þarf að breyta einhverju koma tilkynningar um það í framtalinu. Leiðbeiningar eru hér:

Vísbending um niðurstöðu

Það er líka hægt að fá bráðabirgðaútreikning. Það þýðir að þú getur fengið niðurstöðu úr framtalinu sem er ekki endanleg. Bráðabirgðaútreikningur gefur vísbendingu um hver niðurstaðan getur orðið ef allar upplýsingarnar sem eru í framtalinu eru réttar.

Senda framtalið

Þegar þú hefur prófað og leiðrétt villur sem koma upp er hægt að senda framtalið. Þú færð staðfestingu á því í tölvupósti að sendingin hafi tekist. Um leið verður til pdf-útgáfa af skattframtalinu í pósthólfinu þínu á Ísland.is.

4. Fá niðurstöðu

Um mánaðarmótin maí og júní færð þú tilkynningu með hnippi eða í tölvupósti um að niðurstöður séu tilbúnar.

Álagningarseðill

Niðurstöðurnar koma fram á því sem er kallað álagningarseðill. Þú sérð hann inni á skattur.is eða á Ísland.is.

Útreikningur getur sýnt að:

  • allar greiðslur séu í lagi,

  • þú eigir inneign,

  • þú skuldir pening.